hér er ég...

...

17.10.2008 23:21:52 / marvil

brosum !!

Stjörnuspáin mín á mbl.is í dag:

Naut: Þú elskar náttúruna. Þú getur séð myndir í skýjunum, þú færð skilaboð frá vindinum og dansar við laufin sem falla til jarðar. Hjarta þitt gleðst.

Já hugsum jákvætt og verum góð við hvort annað og sendum knús í hvert hús með gleði í hjarta. 
:haha:



» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2008 00:40:05 / marvil

júlí 2008

já ætli ég afreki eitt blogg á mánuði hehehe.. 
Er annars í fínu andlegu formi.. líkamlegt mætti vera betra en er þó að vinna í því á milli vakta. Nú þar sem bensínið hækkar ört er ég meira og meira að láta mig dreyma um að hjóla í vinnuna - ekki alveg komið í framkvæmd en jah alveg á leiðinni, næstum farin að vakna fyrr og allt. Bjartsýn?? Já mjög! er samt byrjuð í ræktinni og farin að skokka upp á Esjuna og svona:haha:

Síðan ég var hér síðast er ýmislegt búið að gerast. Helst í fréttum er að það fæddist lítil prinsessa, hún Edda Júlíana þeirra Þórhildar og Jóa, ég er búin að kíkja á hana og jeminn hvað hún er mikil snúlla!

Ég gerðist hótelstýra eina helgi - fínt að hoppa inní smá stund, rifjaðist upp hótelstjórafílíngurinn síðan í fyrra.. nema hvað ég hafði tíma til að skondrast upp á jökul í sleðaferð eftir úttékk í þetta sinn - var ekki séns í fyrra hehehe og jeminn hvað það var gaman.. skondra kannski myndum inn síðar.

Það er ótrúlega ljúft að eiga frídaga eins og í sumar - held að ég hafi sveimérþá ekki upplifað slíkt í allnokkur ár - en fílaða i tætlur! 

Sá í blaðinu í dag að draumur minn um að meikaða hefði getað orðið að veruleika í dag þegar ég sá að Mercedes club vantaði söngkonu - hva skil ekkert íðí að þau hafi ekki bara hringt beint í mig!! Hehehehe já eða þannig -ætti ekki annað eftir híhíhí 

Jæja kominn er háttatími - verð að vera fersk fyrir bókanir í fyrramálið..
góðar stundir. 







» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2008 13:56:59 / marvil

Júní 2008

júhúúú ! 

Jámm kominn tími á smá pistil. Fínt að frétta af mér og mínum, gekk vel í skólanum í vetur, komin á fullt í vinnu og nýkomin heim frá London/Dublin. 

Fyrstu helgina í Júní fór ég ásamt 4 söngvinum norður með tónleika í Ketilhúsi. Tveir tenórar, Svenni Dúa og Siggi Þengils og þrjár sópran, Unnur Helga, Lilja Guðmunds og ég. Helga Bryndís sá um undirleikinn og tókst þetta barasta mjög vel - margir komu að hlusta og fóru heim með bros á vör. 

Ég og Jói skelltum okkur síðan til London á dögunum.. byrjuðum á því að villast aðeins um borgina með ferðatöskurnar í eftirdragi og einmitt þá labbaði ég Á Colin Firth!! En fyrir þá sem ekki vita lék hann Mark Darcy í Bridget Jones myndunum, sem eru mínar uppáhalds, kannski af því að ég finn sjálfa mig mikið í Bridget híhíhí

Í London nutum við þess að vera til vorum ekkert rosalega mikið í túristagírnum, fórum þó að höllinni og svona röltum um. Við kíktum í nokkrar búðir og hittum Keisuke vin minn síðan í Vínarborg svo eitthvað sé nefnt. 
Nú ferðin var eiginlega bara plönuð one way þangað til á síðustu stundu :-) bara af því að ég átti gjafakort með iceland air sem fór í ferðina út - síðan gleymdum við einfaldlega að kaupa ferð heim hehe en það hófst að lokum og frá Dublin!! Já bara skemmtilegt ævintýri það..fórum þar á írskan pub að sjálfsögðu og upplifðum stemmarann þar. Nú við villtumst líka í Dublin hehe og löbbuðum örugglega 12 km þann daginn... en allt reddaðist þetta nú:haha:

Í dag er ég í fríi - er að reyna að laga til heima hjá mér en merkilegt nokk hvað það gengur hægt!!  Einhvern veginn fer tiltektarkrafturinn við  að hlusta á risavöxnu gröfuna gubba grjóthnullungum á risa pall á hlussuvörubíl sem urrar síðan í burtu hérna fyrir framan húsið! Þreytandi að hafa svona tryllitæki hér - ekki einu sinni hægt að sitja úti á svölum með góða bók því slíkur er hávaðinn:$

Jæja nú er best að láta það sem vind um  eyru þjóta og skondra hressri tónist á og byrja tiltektina -  koma svo!!!

Kv. Mæja

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 00:26:16 / marvil

kl 16:00 í dag, 26 apríl....

á ég afmæli :haha:

fljótur að líða þessi tími ? já svei mér þá en það er líka gaman. Ég mun eyða deginum í söng, sem er jú mitt hjartans mál núna, svona fyrir utan kærastann híhí, en það styttist í próf og því er betra að æfa vel og vandlega.

Nú annars er  fínt að frétta af mér.. komin í sumardjobbið - ákvað að reyna að sjá sólina aðeins meira en undanfarin sumur og vera því ekki að vinna á Eddunni - brosi þó allan hringinn - á bakvíð tjöldin því ég verð að vinna í bókunardeildinni :d og finnst það bara gaman en það verða sannarlega viðbrigði að vera ekki í beinni aksjón í sumar.. eða kannski ekki. það er jú gaman og gott að breyta til.

Ekki nenni ég að eyða tíma í blogg um mótmæli eða peningakreppu Íslands eða lífsgæðakapphlaup landans... því segi ég bara :

Don´t worry, be happy  ;) 

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.02.2008 22:29:07 / marvil

eurobandið!!!

Jámm ég er bara ánægð með eurobandið fyrir okkar hönd í vor!! Var nú ekki búin að fylgjast mikið með en búin að fá samt yfir mig nóg af mercedes club...hefði flutt úr landi og skipt um ríkisborgararétt ef það hefði unnið!!

Vona að allir séu annars í góðum gír og smæli framan í heiminn....

Kv. Mæja

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 14:39:21 / marvil

hvað er títt

humm það er svosum ekki mikið búið að gerast hjá mér undanfarið... allt er bara í góðum gír og svona. Er ekki no news, good news?? Júbb held það bara! Ég var að lesa bréfið til biskups frá henni Ástu Fönn um "Laufásmálið" og mér þætti það miður ef kirkjan ætlar sér virkilega að bola Þórarni Péturssyni í burtu með eitt stærsta fjárbúið!! Bréfið má finna hér: astaflosa.blogspot.com Ekki get ég ímyndað mér að presturinn sem kemur til með að búa þarna kippi sér upp við það þó hann haldi sínu glæsta búi áfram þarna og fái að búa áfram á jörðinni. Hann og hans fjölskylda hafa hirt vel um Laufás og allt þar í kring, og síðan þarf nú ekki að nefna að sr Pétur sinnti starfi sínu vel og væri þá ekki viðeigandi að kirkjan komi til móts við Þórarinn sem er klárlega að gera góða hluti í búskap og styðja hann áfram með því að leigja honum áfram jörðina þó annar prestur komi í Laufás. Mér finnst að það þurfi að skoða þessa hluti mun betur og að það þurfi að fara varlega! Þetta er gríðarlegt áfall fyrir fjölskylduna ef af þessu verður. Ég trúi ekki að það sé betra að hann bregði búi í haust.. hvað tekur þá við?? Mun næsti prestur verða fjárbóndi og halda áfram búskap eða mun allt grotna niður þarna? Bændur eiga nú alveg skilið klapp á bakið og það ætti ekki að kippa fótunum undan svona fyrirmyndarbúi, stærsta fjárbú í Eyjafirði er mér sagt og Þórarinn með yngstu bændum landsins. Viljum við bara vera bissnesskallar og kellingar í jakkafötum og drögtum í verðbréfabransanum eða?? Lífið snýst allt of mikið um peninga finnst mér... vantar meira að hugsa um náungann og að öllum líði vel frekar einhver svona prinsippmál og hana nú!! Ég vona sannarlega að þetta fari á sem farsælastan veg! Kv. Mæja

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 13:56:31 / marvil

Gleðileg jólin til sjávar og sveita!!!

Já, síðbúin jólakveðja er betri en engin kveðja :D Annars eru jólin ekkert búin þannig að þetta ætti alveg að vera í lagi, og svo er ég líka að fara að skreyta jólatréð mitt á eftir þar sem það hafði það bara gott á svölunum á meðan við Jói fórum norður í jóladekur.. En nú er komið að því að skreyta og það er bara gaman að eiga það eftir. Ég er semsagt í góðum jólagír og búin að lifa eftir því.. borða, sofa, borða, lesa, spila, borða, sofa....

...jólatréð bíður...


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 14:54:42 / marvil

Nálgast jóla lífsglöð læti....

jebb jólin eru að koma og það er líka kominn snjór í sódómu Reykjavík sem gerir enn jólalegra:D Ég er nú ekki byrjuð að kaupa jólagjafir.. bara búin að vera flytja með Jóa og síðan er svo mikið að gera í skólanum. En það er gaman að vera til og svo er skíðasnjórinn kominn en heyrst hefur af hörkutólum sem skokka upp brekkurnar í Bláfjöllum til að sjúbba niður í blússandi færi, vantar bara meiri snjó til að geta opnað lyfturnar. Það væri ekki slæmt að fara með heitt súkkulaði og Stroh á brúsa, skokka upp með brettið á bakinu og sjúbbast niður í blússandi stuði!! Fyrir norðan er hægt að fara í fjallið og ég ætla rétt að vona að um jólin verði líka opið því þá skelli ég mér vonandi í nett júlesjúbb

 

Farin að jólast....

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 11:24:10 / marvil

ekki alveg farin...

Nei hér er ég komin aftur í svona blússandi jólaskapi. Löngu komin heim frá Jamaica sem var annars alveg frábær ferð í alla staði!! Mæli með því að allir skelli sér þangað í afslappað umhverfi. Næstu dagar fara mest í flutningar híhí þægilegt að hafa ekki klárað að taka upp úr kössum  í haust því nú er minna að pakka niður - var þetta eitthvað í undirmeðvitundinni sem vissi meira en ég?? Ég held það svei mér þá..  Gaman að breyta til og svo eru jólin aaaalveg að koma. Hmm ég hef annars ekki mikið að segja... svona í augnablikinu en mér dettur eitthvað skondið í hug síðar.

Kv. Mæja


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 22:51:37 / marvil

ég fer í fríið...

Farin til Jamaica í 8 daga :haha: hafið það gott hér á fróni...

Kv. Mæja


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 20:57:07 / marvil

híhí

:haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 22:26:21 / marvil

Tíminn líður trúðu mér...

já svo sannarlega flýgur tíminn hratt og örugglega áfram.. kominn október og árið 2007 fer bráðum að verða búið - jeminn hvað sumt gerist hratt. Til dæmis það að lenda í slysi hlýtur að gerast hratt og svo hratt og skyndilega að maður er lengi að átta sig á hvað gerðist.. Ég fékk tölvupóst á dögunum um hræðilegt slys sem kunningi minn Jón Gunnar Benjamínsson lenti í. Hann þurfti á 40 lítrum af blóði að halda og því væri gott að sjá þá sem tök hafa á, að skondrast nú í blóðbankann og leggja þar inn nokkra blóðdropa.

Tíminn líður líka hratt hjá mér.. ég er varla byrjuð að vinna þegar ég er hætt híhí jámm hef sagt upp störfum sem kennari í bili eftir ansi merkilega reynslu. Ég er ekki þeim eiginleikum gædd að lesa hugsanir fólks og hef ekki aðstoð að handan svo auðveldlega þannig að ég hreinlega gat ekki haldið áfram sökum manneklu á túlkum. Þannig að nú tekur nýtt við - hvað það verður veit nú enginn en það er bara pínu spennandi. Ég hef ákveðið að sinna söngnum vel í okt og vera ekkert að hugsa um atvinnuleit fyrr en ég kem heim frá Jamaica! Ja man!! Það verður bara gaman að fara þangað í afslöppun nú um mánaðarmótin í 8 daga - get bara ekki beðið!

Eftir erfiðan vinnudag vegna skorts á túlkum, fór ég í betri gallann og skondraðist upp á Hilton Reykjavík Nordica eða Hilton Nordica Reykjavík, vúps man aldrei hvernig nafnið er, en ég fór semsagt þangað í opnunarpartý og það var svaka stuð.. fullt af eðalvínum og snittum, sushi og desertum. Svo var líka fullt af friðarsúlum Lennons lýst á hótelið.. já eða svona batman-kösturum upp í himinn og á hótelið, auk þess mátti sjá lennonljósið eina og sanna frá Viðey -  ég veit ekki alveg hvað mér finnst um þetta ofurhetjuljós út í loftið.. mér finnst að það ætti að vera bleikt þessa dagana eins og flest annað.. jæja nóg um það -Ég er ekki frá því að það hafi nú bara bjargað deginum að fara þarna og mingla við hótelfólkið. En annars er ég líka önnum kafin við að horfa á Greys Anatomy í frítíma og jah það er eiginlega kominn tími á það núna híhí

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 11:59:39 / marvil

Ónefnd færsla

Sumardjobbið búið - ekki alveg samt..á eftir að ganga frá reikningum og mikil ósköp finnst mér það leiðinlegt ! Ég kem mér alltaf í eitthvað annað til að reyna að komast undan því (til dæmis að blogga núna) en ekkert gerist.. reikningaskammirnar fara ekkert frá mér! Þetta fer þó að klárast híhí

 Nú ég er semsagt flutt í borgina og er svo sæl með það, leigi á besta stað í bænum, á leið í söngnám og spennandi vinnu - getur það verið betra?? Ekki mikið held ég híhí... 

Það er búinn að vera skemmtilegur tími síðan ég kom frá Höfn, þrátt fyrir stærstu frunsu lífs míns..já fékk stærðarinnar kvikyndi á ALLA efri vörina síðustu dagana á Höfn og er núna uþb tveimur vikum síðar laus við óbermið.. Held að læknastéttin á Höfn sé fólk í öskudagsbúningum því þau vildu ekkert gera fyrir mína risastóru blæðandi frunsu en í hér var ég sett beint á sýklalyf - en öskudagsliðið á Höfn sá ekki ástæðu til þess. Öskudagslið segi ég af því að reynsla mín af heilbrigðisgeiranum á Höfn er ekki svo sérstök eftir að tvö úr starfsliði mínu slösuðu sig í sumar og ÉG átti að hlúa að þeim ÁN þess að nokdur læknir litia á 8| Slapp svosum til en óþægilegt var það.. Nóg um það híhí en síðan ég kom að austan er ég búin að fara norður á menningarvöku, sem var mjög skemmtilegt.. góður matur í góðra vina hópi, skemmtileg stemmning í bænum og flott flugeldasýning.. bara skemmtilegt í alla staði. Síðasta vika er líka búin að vera skemmtileg innan um reikningana híhí og pappakassana mína sem bíða þess að tæmast og komast á nýjan stað hjá Sorpu.. er semsagt líka að koma mér fyrir og það mjakast hægt en örugglega -er ekkert að stressa mig enda hefur það engan tilgang. Ég nýt lífsins í botn og fílaða :haha: Nýjasti viðburður í mínu lífi var brúðkaup Birnu og Didda - frábær skemmtun og enn og aftur til hamingju.. gaman þegar ástin svífur um loftin...

 En nú eru reikningarnir farnir að horfa undarlega á mig...:$ held ég verði að fara gera eitthvað híhíhí


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 00:47:06 / marvil

hahahaha

Jeminn eini og þetta er sett í fréttir !! Aumingja kallinn dottar yfir bíómynd og það kemur á fréttavef. ja hérna... mikið er ég glöð að vera ekki í þeim sporum að mega varla hreyfa mig án þess að það birtist einhvers staðar í blöðum. Sumt fólk þrífst á því að vera í blöðunum, svokallaðar public figures.. skil ekki þörfina - hvað skiptir það landann hvað ég eða þú gerum svona dagsdaglega? Séð og heyrt er nú alveg pésinn til að fjalla um bobby fisher sofandi í bíó svona til dæmis..  Jámm alveg er ég sátt við að vera no name í stað public figure... tala nú ekki um ef það má ekki dotta í bíó.. hef oft gert það hehehe og skammast mín ekkert fyrir það híhíhí

Nóg um það ... vertíð minni sem hótelstjóra fer að ljúka... hvað tekur við veit ég ekki nema söngskólinn .. sendi fyrirspurn fyrir vinnu í dag -  tek því annars með ró að leita mér að vinnu því mig langar að eiga nokkra daga frí í sept.. verð nú að komast í réttir og svona híhíhí

En það er skrítið að hugsa til þess að ég fer að ljúka mínum störfum hér og jah ég á eftir að sakna þeirra - þrátt fyrir blóð, svita og tár ! Það er gaman að vera hér og ég hef lært svo mikið í svo mörgu í sumar að ég hef oft sagt að vinna mín hér jafnist alveg á við mastersnám í háskóla!! og ég meina það svo innilega - það er svo margt sem ég hef þurft að takast á við, sumt auðvelt - annað mjög erfitt en alltaf þarf ég að finna lausna. held að þetta sé mín stærsta áskorun hingað til - og ég sé ekki eftir því að hafa glímt við hana ;)

 á morgun er dagur 1. í flutningum suður, já einvala lið mun bera dótið í flutningabíl og síðan eru smá vandræði að finna fólk til að afferma bílinn í borginni á mánudag... Ef það eru einhverir sjálfboðaliðar þá bitte shön... ég yrði rosalega glöð að fá aðstoð - tala nú ekki um þar sem ég er stödd á hornafirði híhíhí en jæja það hlýtur að reddast

Bið að heilsa í bili..

 kv. Mæja

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 00:51:49 / marvil

Lagið um það sem er bannað....

Það má ekki pissa bak við hurð - og ekki henda grjóti oní skurð...

...þetta fullorðna fólk er svo skrítið, það er alltaf að skamma mann....

 Mér dettur nú bara þetta annars ágæta lag í hug þegar ég les um mál Akureyrar í sambandi við verslunarmanna helgina. Í rauninni er ég alveg hlynnt því að stoppa unglingadrykkjuna þarna um verslunarmannahelgar því undanfarin ár hefur þetta nú ekki verið mjög geðslegt. En hins vegar er kannski spurning um að gera svona drastískar aðgerðir eins og gert var núna.. veit ekki með það, líka hæpið að banna ungu fjölskyldufólki til dæmis að tjalda, ef það hefur verið raunin. En hvernig sem þetta fór allt saman, þá finnst mér alveg í lagi að fólk velti þessum hátíðarhöldum aðeins fyrir sér. Erum við ekki með slíkri hátíð að ýta undir unglingadrykkju, sukk og svínarí? Mér finnst við vera allt of upptekin af því að halda sem feitustu bæjarhátíðir með dollaramerki í augunum þar sem Mammon hefur tekist að læsa klónum í fólk - nema kannski bæjarstjórn Akureyrarbæjar. Þeir ákváðu að segja nei og mér finnst það bara allt í lagi. Skil ekki alveg þessar endalausu bæjarhátíðir.. humarhátíð á Höfn var til dæmis lítið annað en sukk í mínum augum. Ég fór ekki einu sinni inn fyrir bæjarmörkin en jú fann ágætlega fyrir því hvað starfsfólkið mitt sóttist í - fer ekki nánar út í það hér híhí

 Nóg um það. Mig langar til útlanda í haust. Veit bara ekki alveg hvert.. er farin að láta mig dreyma allskonar ferðir... sólarlandaferðir, borgarferðir, helgarferðir, aðventuferðir jájá hvað sem er. Mig dreymir líka um að eignast kisu..stendur ein til boða og jah er mikið að spá í að slá til..

Kannski ég lifi bara bóhem lífi á laugaveginum með kisu og spilandi fyrir hana á gítar.. já mig langar líka að æfa mig betur á gítarinn og er mikið að hugsa um að kaupa mér einn slíkan híhí og spila og syngja á síðkvöldum fyrir mig og kisuna. híhíhí

 en nú er kominn háttatími hjá mér....

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  19  Alls: 16033
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 17 október