Nei hér er ég komin aftur í svona blússandi jólaskapi. Löngu komin heim frá Jamaica sem var annars alveg frábær ferð í alla staði!! Mæli með því að allir skelli sér þangað í afslappað umhverfi. Næstu dagar fara mest í flutningar híhí þægilegt að hafa ekki klárað að taka upp úr kössum í haust því nú er minna að pakka niður - var þetta eitthvað í undirmeðvitundinni sem vissi meira en ég?? Ég held það svei mér þá.. Gaman að breyta til og svo eru jólin aaaalveg að koma. Hmm ég hef annars ekki mikið að segja... svona í augnablikinu en mér dettur eitthvað skondið í hug síðar.
Kv. Mæja