hér er ég...

...

03.09.2007 11:59:39 / marvil

Ónefnd færsla

Sumardjobbið búið - ekki alveg samt..á eftir að ganga frá reikningum og mikil ósköp finnst mér það leiðinlegt ! Ég kem mér alltaf í eitthvað annað til að reyna að komast undan því (til dæmis að blogga núna) en ekkert gerist.. reikningaskammirnar fara ekkert frá mér! Þetta fer þó að klárast híhí

 Nú ég er semsagt flutt í borgina og er svo sæl með það, leigi á besta stað í bænum, á leið í söngnám og spennandi vinnu - getur það verið betra?? Ekki mikið held ég híhí... 

Það er búinn að vera skemmtilegur tími síðan ég kom frá Höfn, þrátt fyrir stærstu frunsu lífs míns..já fékk stærðarinnar kvikyndi á ALLA efri vörina síðustu dagana á Höfn og er núna uþb tveimur vikum síðar laus við óbermið.. Held að læknastéttin á Höfn sé fólk í öskudagsbúningum því þau vildu ekkert gera fyrir mína risastóru blæðandi frunsu en í hér var ég sett beint á sýklalyf - en öskudagsliðið á Höfn sá ekki ástæðu til þess. Öskudagslið segi ég af því að reynsla mín af heilbrigðisgeiranum á Höfn er ekki svo sérstök eftir að tvö úr starfsliði mínu slösuðu sig í sumar og ÉG átti að hlúa að þeim ÁN þess að nokdur læknir litia á 8| Slapp svosum til en óþægilegt var það.. Nóg um það híhí en síðan ég kom að austan er ég búin að fara norður á menningarvöku, sem var mjög skemmtilegt.. góður matur í góðra vina hópi, skemmtileg stemmning í bænum og flott flugeldasýning.. bara skemmtilegt í alla staði. Síðasta vika er líka búin að vera skemmtileg innan um reikningana híhí og pappakassana mína sem bíða þess að tæmast og komast á nýjan stað hjá Sorpu.. er semsagt líka að koma mér fyrir og það mjakast hægt en örugglega -er ekkert að stressa mig enda hefur það engan tilgang. Ég nýt lífsins í botn og fílaða :haha: Nýjasti viðburður í mínu lífi var brúðkaup Birnu og Didda - frábær skemmtun og enn og aftur til hamingju.. gaman þegar ástin svífur um loftin...

 En nú eru reikningarnir farnir að horfa undarlega á mig...:$ held ég verði að fara gera eitthvað híhíhí

Birna skrifaði
Takk fyrir það mín kæra, þetta var bara gaman og einn af bestu dögum í mínu lífi:) Gaman að hafa ykkur til að samgleðjast okkur. Fengum þetta fína matarstell og nóg af víni eftir svo að nú er ekkert sem að kemur í veg fyrir matarboð fljótlega:) kveðja af skaganum
Mímí skrifaði
Og hvenær fær maður svo að sjá þig?
unnur maría skrifaði
Til hamingju með að vera búin með þessa törn, og gangi þer vel í næstu! Ferðafélaginn biður að heilsa

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 16562
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 17 október