já ætli ég afreki eitt blogg á mánuði hehehe..
Er annars í fínu andlegu formi.. líkamlegt mætti vera betra en er þó að vinna í því á milli vakta. Nú þar sem bensínið hækkar ört er ég meira og meira að láta mig dreyma um að hjóla í vinnuna - ekki alveg komið í framkvæmd en jah alveg á leiðinni, næstum farin að vakna fyrr og allt. Bjartsýn?? Já mjög! er samt byrjuð í ræktinni og farin að skokka upp á Esjuna og svona

Síðan ég var hér síðast er ýmislegt búið að gerast. Helst í fréttum er að það fæddist lítil prinsessa, hún Edda Júlíana þeirra Þórhildar og Jóa, ég er búin að kíkja á hana og jeminn hvað hún er mikil snúlla!
Ég gerðist hótelstýra eina helgi - fínt að hoppa inní smá stund, rifjaðist upp hótelstjórafílíngurinn síðan í fyrra.. nema hvað ég hafði tíma til að skondrast upp á jökul í sleðaferð eftir úttékk í þetta sinn - var ekki séns í fyrra hehehe og jeminn hvað það var gaman.. skondra kannski myndum inn síðar.
Það er ótrúlega ljúft að eiga frídaga eins og í sumar - held að ég hafi sveimérþá ekki upplifað slíkt í allnokkur ár - en fílaða i tætlur!
Sá í blaðinu í dag að draumur minn um að meikaða hefði getað orðið að veruleika í dag þegar ég sá að Mercedes club vantaði söngkonu - hva skil ekkert íðí að þau hafi ekki bara hringt beint í mig!! Hehehehe já eða þannig -ætti ekki annað eftir híhíhí
Jæja kominn er háttatími - verð að vera fersk fyrir bókanir í fyrramálið..
góðar stundir.