Jæja helgin leið hjá og ég hafði það gott.. Ég fór í
Svarfaðardal að spila Brús á föstudag og skemmti mér vel, gaman að
rifja upp gamla takta í þessu magnaða spili.
Laugardagur var hressandi..frændsystkini mín voru með mér að
velja afmælisgjafir fyrir 1 og 3ja ára afmæli sem við héldum síðan
í síðar um daginn. Svaka stuð frameftir degi og jah það var rétt að
byrja. Um kvöldið skellti ég mér í boð til Láru Sóleyjar og þaðan á
þann merka stað Sjallann!! Og viti menn.. auðvitað voru börn þarna
inni, meira segja 16 ára
jeminn eini !! Reyndar var kannski ekki
mikið um svona ungt fólk þar sem margir voru líka á mínum aldri,
þannig að þetta var nú ekki svo slæmt - enda stendur Sálin fyrir
sínu.
Mér tókst á einhvern undraverðan hátt að týna veskinu mínu án
þess að hafa hugmynd um það (hmm annars hefði ég ekki týnt því
) En þegar ég uppgötvaði veskismissinn stoppaði tíminn smá
stund því í voru húslyklarnir, síminn, visakortið - jah bara svona
nauðsynjahlutir til að komast heim (sími,visa og lyklar)
Nú
var bara að krossa fingur, tölta niður í fatahengi og halda kúlinu
og viti menn!! Einhver svakalega heiðarlegur dansari fann veskið
mitt á dansgólfinu og skilaði því í fatahengið án þess að taka sér
100 kallana sem í því voru í fundarlaun
jeminn hvað ég var glöð
og þakka viðkomandi kærlega fyrir mig
Sunnudagurinn fór í svakalega fínt matarboð, þar sem maturinn
var jah uþb 350.000 kr virði!! Já gott fólk á borðum var eðalsoðið
grænmeti, kjúklingur og lax með kartöflugratíni og betty crocker
súkkulaðikaka með fersku jarðarberjum og rjóma. mmmmm
Nú hugsið þið örugglega sem mig þekkið, oooo mæja hefur
aldrei verið sterk í stærðfræðinni.. sénsinn að þessi matseðill
kosti þessa summu af peningum!!
Nei satt er það, hráefnið var ekki dýrt en eðal-læknastálið
sem hráefnið var eldað í kostaði skildinginn hehe ég var semsagt á
kynningu á undrapottunum frá Salatmaster eða eitthvað svoleiðs híhí
Svaka fín kynning og jú maturinn smakkast rosalega vel, öll
næringarefni eiga að haldast betur úr þessum pottum en öðrum
pottum.. hmm jú það er alveg ljóst en þeir kosta sitt þessir
pottar. Persónulega væri ég alveg til í að eiga svona potta og
pönnur þó aðallega grænmetiskvörnina híhi en svona marga
hundraðþúsundkalla á ég ekki í pottasett, það verður að bíða betri
tíma.
4 dagar í páskafrí....víííííí
og vika í heimsókn á Höfn
